Heim Ívar Helgason

Ívar Helgason

Ívar Helgason er að verða landanum alkunnur eftir að hafa staðið á sviði í yfir 20 ár. Hann hóf söngferil sinn 8 ára í Kór Öldutúnsskóla undir handleiðslu Egils Friðleifssonar og söng titilhlutverkið í uppfærslu Íslensku óperunnar á barnaóperunni Litli sótarinn eftir Benjamin Britten 11 ára gamall. Eftir það var ekki aftursnúið. Ívar hefur verið viðloðandi sviðið allar götur síðan.

Hann hóf söngnám við Tónlistarskólann í Hafnarfirði hjá Eiði Ágústi Gunnarssyni. Við Söngskólann í Reykjavík naut hann handleiðslu Bergþórs Pálssonar og Guðmundar Jónssonar.

Haustið 2001 hóf Ívar nám við söngleikjadeild Tónlistarháskólans í Vínarborg en sú menntun felur í sér að vera jafnvígur í söng, leiklist og dansi. Ívar útskrifaðist með láði árið 2003 og var þá þegar kominn með stöðu dansara við Raimund-Theater þar í borg við heimsfrumsýninguna á Rokksöngleiknum Barbarella.

Næstu fjögur árin starfaði Ívar í Austurríki, Sviss, Þýskalandi og á Ítalíu í fjölda söngleikja. Þar ber hæst hlutverk Jean Valjean í Vesalingunum og Kaiser Franz Joseph í söngleiknum Elisabeth sem var fluttur 7 sinnum í viku yfir eitt og hálft ár í Apollo-Theater í Stuttgart, sem er 1800 manna hús.

Árið 2007 fluttist Ívar aftur heim ásamt fjölskyldu sinni og hóf störf við Þjóðleikhúsið auk þess sem hann hóf söngkennaranám við Söngskólann í Reykjavík. Ívar hefur fengist mikið við tónsmíðar, textasmíðar og útsetningar. Á fyrstu hljómplötu hans, Jólaljós,  líta nokkrar þeirra dagsins ljós.